Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla

Gleðilegt ár elsku dætur mínar, barnabörn vinir og ættingjar og takk fyrir þau liðnu.  Þrátt fyrir bölmóð og svartsýnishjal í öllum fjölmiðlum er ég bara bjartsýn á nýja árið.  Ég setti mér tvö áramótaheit fyrir mig persónulega og eitt sem varðar leikskólann minn.  Svo nú er ekki annað að gera en bretta upp ermar og láta hendur standa fram úr ermum.  Ég læt það ógert að setja þau fram hér... hef þau heldur skrifuð á öðrum stöðum. 

Ég ætlaði að setja inn nokkrar jóla og áramótamyndir en þetta tekur allt svo langan tíma að ég held að það verið að bíða aðeins.

Hetjur

Þessi er tekin í Grímsnesinu fyrir jól.. þvílíkar hetjur

 ágúst 08 006

Sveinbjörg fékk gítar og heyrnartól..... ekki langt að sækja það ...

 Skötuhjúin

Við skötuhjúin við brennuna


Gleðilega hátíð

Gleðilega hátíð kæru vinir og ættingjar.  Jólin eru búin að vera mikið notaleg í ár.  Á milli þess sem ég hef sett matinn  á borðið hef ég fært mig á milli sófa í húsinu  til að lesa, hlusta á tónlist eða horfa á sjónvarpið.  Nema ég er búin að prufa jólagjöfina sem ég óskaði mér og fékk....  stig-vél.. Nú er ég komin með þessa fínu líkamsræktarstöð heima, stig-vélina uppi og pottinn á pallinum svo það duga mér engar afsakanir lengur.

Ég hef smá samviskubit að hafa ekki drattast út í fjós með honum Magnúsi mínum.. en það er  bót í máli að Jónas hefur verið með honum..Er ekki sagt að kýrnar fái mál á nýársnótt..  kannsi ég fari og taki smá rispu þar í dag og taki til fyrir áramótagleði  þeirra ..  og það væri ekki úr vegi að nota tækifærið og spjalla aðeins við þær.. kannski að biðja þær að vera ögn hreinlegri.. .. ..

En hafið það gott sem eftir lifir af hátíð ljós og friðar.

Ykkar Heiða Björg


Veðursældin á Hvolsvelli

Ég er alltaf jafn undrandi hvað það er mikil veðursæld  hér á Hvolsvelli. Þetta er útsýnið frá skrifstofunni minni  í leikskólanum.   Það sem mér, fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og bý að Steinum undir Eyjafjöllum,  finnst alveg sérstakt við þessi tré og þennan snjó er að þetta er búið að vera svona í 3 daga.  Svo ek ég heim .. jú það er nú snjór það líka en hann er löngu fokin af trjánum..

Snjór 2

Snjór 1


Flísalögn

Allt á fullu í jóla, jóla.  Svo á að fara að flísaleggja gólfið í nýja eldhúsinu mín.  Ég hafði hugsað mér að fara í bæinn í kvöld og syngja aðeins með Dúllubeybunum mínu.  En Það kallaði veislustjórinn hún Anna Birna vinkonur mínar í afmælinu um daginn.

En ég held að það verði að bíða því þó Þingmaður okkur sunnlendinga Árni Johnsen telji Magnús geta allt og vilji að hann verði arftaki sinn þá held ég að hann sé ekki sterkur á þessu svið.  ég held að hann hafi  lítið vit á “innlit – útlit” og tel öruggast að ég sé á staðnum þegar eldhúsið, búrið og gangurinn verða flísalögð í dag.

 


Konur og kýr

Við fórum í borgina um síðustu helgi.  Mikið var nú gott að komast aðeins frá svona bæði saman...  En ég get sagt ykkur að kýr eru meira bindandi en börn.  Maður smellir Þeim ekki í bílinn og ekur af stað.

það getur heldur ekki hver sem er hoppað inn í svona rekstur en við erum heppin að hafa hann Jónas sem á það helsta áhugamál að vera í sveitinni .

Kýr eru ekki ósvipaðar konum að því leiti að allar hafa þær sína skapgerð og þarfir og því þarf að sinna þeim eftir því. Það þarf að gefa þessum elskum.. muuuu.. stöðugt að borða og þrífa skítinn undan þeim.. (Ætli það sé ekki hægt að kenna þeim að skíta á einum stað eins  og fara rógbóta).  Þær ganga með kálfa  í nýju mánuði. Þegar þær bera þarf bóndinn að vera ljósmóðir og ungamóðir. Nú svo beiða þær og þá þarf bóndinn að sjá til þess að  koma nauti á þær eða fá sæðingarmanni.  Því jú, líf þeirra gengur út á að fæða kálfa og framleiða mjólk.  Það er nú kannski ekki alveg það sem líf okkar kvennanna gengur út á en að einhverju leyti.

En bæjarferðin var frábær.  Áttum yndislega kvöldstund hjá Sigurpáli og Hildi með pabba, Rut og Bylgju.  Á Laugardeginum fórum við í kolportið, en þangað hafði Magnús aldrei komið og fengum okkur súpu hjá Sjávargreifanum.  Það var alveg frábært að koma þangað, mæli með því. Súpan var góð og stöðugt rennerý af fólki þann tíma sem við vorum þar. Um kvöldið fórum við í afmæli til Þórhildar frá Hvoltungu. Flott veisla þar. Ég skrapp reyndar aðeins úr veislunni til þess að fara á útgáfutónleika í Skífuhúsinu.  Það var hljómsveitin hennar Eyglóar og Vikcy með tónleika í tilefni nýútkominnar plötu..CD...Eftir afmælið kíktum við svo í útgáfupartýið.

Þetta var góð ferð en það besta við þessa ferð eins og allar ferðir var að koma aftur heim í sveitin.


Fleiri myndir

 

Þá eru komnar fleiri myndir úr afmælinu góða.  Þessar er nokkuð góðar og mikið svakalega langar mig að vita hvað þeim fór á milli..

afmæli 246

Strákar hvað sögðu þið við Palla ?? afmæli 248

afmæli 250   


Afmælið og undirbúningur

Hér koma þá loks myndir úr afmælinu og af undirbúningnum.

Magnús minn varð fertugur 12. nóvember. 

Hann var fyrir löngu búin að ákveða að halda upp á afmælið sitt í gamla fjósinu sem er á móti húsinu okkar.

Ágúst myndir Diljá 109Í sumar var svo mikið að gera í bústörfum að það dróst að taka þar til og breyta  fjósinu  í félagsheimili. Þannig að Magnús var eiginlega búin að ákveða að fresta afmælinu þangað til um páska. Við gætum þá dundað okkur við breytingar í skammdeginu.  Vinir og ættingja voru ekki alveg sammála þessu og sögðust nú ætla að koma í afmæli þó svo ekki yrði það haldið í fjósinu. Svo einn daginn þegar ég kom heim nánar... á þriðjudeginum 28. okt. þegar ég hét að það væri allt væri að róast hjá mér eftir törn í vinnunni ákvað hann að drífa bara í þessu...Takk fyrir túkall.                   Nú það var ekki annað að gera  en að bretta upp ermar og byrja. Það fóru tvær helgar í það að skipta um þak á húsinu.  Magnús og Jónas byrjuð á því en á sunnudeginum gerði töluvert rok og komu þá feðgarnir frá Drangshlíð og aðstoðuðu þá við koma járninu á. Svo var flórinn og haughúsið tæmt.

Næsta verk var að koma öllum þeim “verðmætum” sem voru geymd í fjósinu eftir að það var hætt að nota það 1999.   Ég var eins og vinnumaur alla næstu viku að flokka þetta dót og koma því út á. Flest fór í aðra geymslur.. en annað á haugana.

Ég var nú frekar svartsýn á að það  vær nokkur möguleiki á að halda veislu í þessu fjósi eftir nokkra daga  og reyndi töluvert á jafnaðargeðið sambýlis-mannsins.

    fjósið 004  fjósið 007                         Á föstudaginn, viku fyrir fyrirhugaða veislu  komu svo Elín, Ásbjörn og Bjarni. Við byrjuðum á að borða saman hjá tengdó og drifum okkur svo heim að skipuleggja helgina. Með hvatningu frá húsbóndanum um að þetta væri “ekkert mál”  byrjuðum við á að henda út meira af dóti.  Síðan brutum við niður einn vegg og beislunar fyrir kýrnar.

Þar var Sigurjón bróðir Magnúsar eins og múrbrjótur.  Þessu hentum við síðan í flórinn til uppfyllingar og þar munaði sko um hann Bjarna ég hugsa að hann hafi mokað í  og tæmt 100 fötur eða meira. fjósið 008 Þegar við vorum búin að tæma húsið var það versta eftir. Það var að slá astbest plötur úr loftinu og farga þeim.  Ég, Elín og Ásbjörn fórum í hlífaðgalla, hanska og settum grímur á alla sem inni voru. Bleyttum plöturnar og slógum þær niður og tíndum upp brotin og fleygðum þeim á vagn til urðunar.  En við fengum ráðleggingar hjá starfmanni í Sorpu um hvernig ætti að standa að því að koma þessu eitri úr húsi og farga því. 

 fjósið 013

Um kvöldið bættust svo fleiri í hópinn þegar Diljá systir kom með sína fjölskyldu. Á sunnudeginum var farið út og þá fór Elín í brauðið  of fl. því ekki þýðir að slá slöku við í búskapnum þó framundan sé partý. Við Diljá fórum að tína upp rusl og fl. kringum húsin og Ingi tók við af Ásbirni að háþrýsti þvo veggina.  Svo gekk hann frá öllu rafmagni sem var komið út um allt eftir að loftið var tekið niður. Magnús var hálf hissa hvað þessi rólegi maður var búin að afkast miklu þegar komið var mátmálstíma.

Næsta skref var að loka húsinu, þurrka veggina og mála.   Ég tók mér frí í vinnu fimmtudag og föstudag. Sá að það væri nauðsynlegt ef það ætti að vera möguleiki að klára þetta. Og nú ætluðu mamma og pabbi að slást í hópinn.  Þegar þau komu sá ég á svipnum á þeim að þau hugsuð “þetta verður aldrei tilbúið á laugardaginn ...” ég flýtti mér að biðja þau um að segja ekki orð, Magnús  ætlar að halda afmæli þarna á laugardaginn og hann ætlar að klár þetta. Best væri að gera bara það sem hann ætlaði okkur að gera og ekki orð meir. En sjálf var ég alveg að drepast úr stressi mér fannst svo hrikalega mikið eftir.  Svo við tókum pensla og rúllur í hönd og byrjuðum að mála, ég mamma, Anna Birna í Varmahlíð og Sigurjón. Pabbi var aðallega í að fylla upp í flórinn og svo var hann svakalega afkasta mikill í brauðinu, sem var eins gott því annars sætum við uppi með það núna.  Fyrsta umferð var kláruð á fimmtudaginn og sú síðari á föstudaginn. Einar og Díana Hjálpuðu Magnúsi að setja nýtt loft í mjólkurhúsið sem átti að verða inngangur og svo tók óratíma að mála þó lítið væri og við tvær að því.

fjósið 002

 Á milli málninga umferða brutum við mamma servéttur og bjuggum til lugtir sem við Diljá byrjuðum á helgin áður. Svo var runninn upp laugardagur.. ekki beint skýr og fagur. Það var brjálað rok og hiti við frostmark.  Ég hafði meira að segja þurft að fara út um nóttina til það fergja drasl sem byrjað var að fjúka um allt. En ég byrjaði daginn á að gera 20 lítra af sósu.  Mamma og Tína, þýsk kona sem vinnur í leikskólanum og ég fékk til að hjálpa mér fóru í að þvo kartöflur. Það var ekki nokkur leið að vera úti í fjósi því  hurðin  sem snýr  í vestur fauk alltaf upp útaf roki og strákarnir í öðrum verkum sem varð að klára á undan. Eins og t.d. að nái í bekki og gólfteppi sem við fengum að láni í Skálakoti.  Ég get sagt ykkur það breytti öllu. Bekkirnir voru fyrir 50 manns og nú fór ég að verða bjartsýn.   Enda kannski komin tími til þar sem aðeins voru nokkrir tímar í afmæli.   Eygló kom með vinkonu sína hana Eyrúnu og þær fóru í að þvo fleiri kartöflur og skera grænmeti með henni Tínu. Elín og Ásbjörn voru enn komin til bjargar og röðuðu borðum og lögðu á þau með mér og mömmu. Á þessum tímapunkti voru örugglega 10 manns á fullu. Auk þeirra sem ég var að telja upp voru Hemmi, Stefán, Jón þormar og Sigurjón.   Jónas og Palli á Eyri voru á fullu að keyra nýjum  jarðveg í kringum húsið því það var svo mikil mold í þeim sem fyrir var. Þá var komið að skreytingum.   þema afmælisins var aðaláhugmál afmælisbarnsins, það er allt sem gamalt er.. Við höfðum farið til vinar Magnúsar sem átti mikið af gömlum hlutum sem við fengum að næla okkur í.  Þetta var algjört "góssen partý" hjá mínum manni. Þarna fengum við frábæra hluti eins og gamla saumavél, rokk,  skilvindu, vöfflujárn og fl. og fl. þessu stilltum við upp og hengdum á veggin við sviðið. Ég get sagt  ykkur nú var fjósið hætt að vera fjós og orðin geggjaður salur. Vindurinn var að snúast í hreina norðanátt sem þýðir logn heima hjá okkur og gestir voru farnir að láta sjá sig.  Elsku vinkonu mínar vor komnar. Atli græni og Rannveig, Halldór frændi og fl.  Nú það var ekki annað en að koma sér í ullarfötin.  En ég hafði með öllu hinu prjónað mér pils við lopapeysuna mína. Á meðan allir dáðust að dugnað mínum við það var ég ekkert að segja að þetta væri mín aðferð að setjast niður við sjónvarpið þegar ég var orðin dauðþreytt á útivinnunni. ;-) 

En nú var allt komið á flug.  Jónas og Palli búnir að þræða lambið á tein og það farið að snúast. 

 SV206368

  Jón Þormar og Hörður voru við stóra grillið og þar var nautakjötið grillað og síðan sett í ofn í einhvern tíma.  Einhverjum fannst kjötið helst til rautt, en gott var það. Það voru um 130 mann sem snæddu með okkur og þar sem ekki voru sæti fyrir nema 100 manns var að rýma til fyrir þeim sem borðuðu síðast en það gekk mjög vel og allir sáttir. Anna Birna sýslumaður og  nágrannakona okkar frá Varmahlíð hljóp í skarðið fyrir eiginmanninn sinn hann Sigga sem veislustjóri. En Siggi var að vinna norður í landi og  var sárt saknað í veislunni.  Anna Birna bauð alla velkoma í afmælisveisluna og bað fólk um að vera ekki með miklar langlokur í máli sínu og enga væmni....

Systkini Magnúsar með Elínu í fararbroddi voru með skemmtilega myndasýningu af drengnum.        Picture2    Picture1

Vestmannaeyingarnir   Árni Johnsen og Ási Friðriks tróðu upp, annar með söng og hinn með skemmtisögur. 

SV206386   SV206423

Hermann Árnason fór á kostum þegar hann gerði grín að sönghæfileikum þeirra Hvassafellsbræðra.  Saumaklúbburinn minn 7 to gether and one dry flutti lagið Malæka sem við höfðum æft að miklu harðfygli undanfarnar vikur.

SV206421 

Einnig krýndu þær Magnús heiðursorðu sem er hefð í klúbbnum við svona tækifæri. Að þessu  sinni var hugmyndin að orðunni orð sem Magnús á það til að kalla upp nokkrum sinnum í röð þegar hann er að skemmta sér og kannski búin að fá sér einu glasi of mikið að sumra áliti.  Það er  ekki við hæfi að nefna orðið hér það vita það allir sem þekkja Magnús.  En orðið rímar við víkur og ég velti því töluvert fyrir mér hver sé fyrirmyndin af þessu hjá þeim þarna í Geislatækni  en það er greinilegt að þeir geta búið til allt sem manni dettur í hug.  Eygló mín söng fyrir okkur eitt lag “Stand by your man” og gaf mér nokkur heilræði í leiðinni um það hvernig ég ætti að halda í hann Magnús og Siggi í Borg fór með frumsamdar vísur.

 SV206403   SV206406

Eftir að dagskránni var lokið tók við fjöldasöngur þar sem Árni, Dísa skvísa og Hemmi sonur hennar stóðu fyrir af miklum krafti.   Fólk var enn að streyma að þó svo að langt væri liðið á nóttina. Í heildina voru gestir langt á annað hundrað og mér skilst að þeir síðustu hafi farið að hátta klukkan átta... gera aðrir betur.

fjósið 006     SV206404

 Þetta var alveg ólýsanlega skemmtilegt kvöld og við þökkum ykkur öllum fyrir komuna.En sérstaklega þökkum við ykkur sem hjálpuðu okkur við að koma húsinu og öllu í stand og ykkur sem stóðu í uppvaski og frágangi. Ég er ekki búin að nefna nema helming þeirra hér á undan .. takk takk elsku ættingjar og vinir.. Ég er farin að hlakka til að verða XX..... eftir tvö ár.. Á næstu dögum mun ég setja fleiri myndir í albúmið.. þetta er bara byrjunin. 

Takk fyrir komuna

Kæru vinir það bíða greinilega margir eftir myndum og afmælissögu.  Ég er að bíða eftir að fá myndir frá ljósmyndurum kvöldsins. Von að ég geti sett eitthvað inn á morgun.    Það verður gaman að sjá myndirnar og kannski við getum áttað okkur betur á fjöldanum en það er greinilegt að það komu hátt á annað hundrað manns og það er frábært.

Hann Magnús minn þakkar kærlega fyrir sig og hlakka til að halda upp á næsta afmæli eftir tvö ár.....


Til hamingju

Margir af mínu nánasta fólki á afmæli í nóvember. Gulla vinkona mín er 2 nóv. Eygló mín 4. nóv. Bogga tengdó er 8 nóv. Mamma og Bylgja systir eiga afmæli í dag.. til hamingju báðar elskurnar mínar.  Á miðvikudaginn á svo hann Maddi minn afmæli og af því tilefni ætlum við að halda veislu í gamla fjósinu að Hvassavelli.  Við erum búin að vinna að því undanfarna daga að breyta fjósinu í félagsheimili.. eða þannig.. Þegar við byrjuðum var ég efins um að við næðum því að gera það sem þarf að gera til þess að halda þarna veislu. En í dag eftir að vera búin að fá frábært fólk með okkur í að róta út og þrífa.  Eins og við sögðum oft um helgina. " þetta ekkert mál"  Takk Elín, Ásbjörn, Ingi, Diljá, Jónas, Sigurjón, Bjarni og Jón Gauti..  og sjáum um næstu helgi..


Afmæli Magnúsar

Kæru vinir og ættingjar

 

Hann Magnús minn ætlar að halda upp á afmælið sitt laugardaginn 15. nóvember

Og vonast hann til að sem flestir komi og geri sér glaðan dag með sér.  Grillveisla verður  í  gamla fjósinu að Hvassafelli og byrjar hún að sjálfsöguð að sveitasið eftir mjaltir eða upp úr  kl. 20:30. En fjósið opnar fyrr...

Ágúst myndir Diljá 109 hér er verið að setja nýtt þak á fjósið svo ekki lekur það en því miður mætti málarinn ekki í sumar eins og til stóð ..

 

Lopapeysa og kuldaskór  eru líklega besti klæðnaður kvöldsins en það fer að sjálfsögðu eftir veðri.

Svefnpokaplássi á loftinu á Hvassafelli hefur  verið úthlutað til nánustu ættingja svo sem foreldum  okkar og  systkinum þannig að gott væri að vita hverjir ætla að nýta sér það. 

  

Nokkrir staðir eru í nágeninu sem bjóða upp á bændagistingu og sjáum ;-)  við til þess að einhver verði í ökuhæfu ástandi til þess að ferja fólk á milli.

 Vonumst til að sjá sem flesta
Skemmtinefnd Steinahrepps


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gaman saman

Höfundur

Heiða Björg Scheving
Heiða Björg Scheving

Heiða Björg er mamma, amma, húsmóðir og leikskólakennari  sem er nýflutt úr borginni í sveitasælu á suðurlandi.

Það er svo margt skemmtilegt sem hún er að upplifa og  hún hefur mikla þörf fyrir að skrifa um það sem á daga hennar drífur og er þá ekki bara eins gott að leyfa því að flakka.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Eyfjaferð Fo-95 013
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 202
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 242
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 173
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 206

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 54896

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband