Færsluflokkur: Spaugilegt

Kýr nr. 69 Haustverk í sveitinni

 Í gær hjálpaði ég  Magnúsi við að koma einni frekar þrjóskri belju inn í fjós í .  Ég held ég græði á því hvað hann er vanur að sinna þessum skepnum sem allar hafa sinn karakter.  Til dæmis ef ég þar að koma einhverjum leiðinlegum skilaboðum á framfæri... þá svara hann bara brosandi "Heiða mín er ekki nöldurhornið búið í þessari viku" En þetta með kúnna í gær.  Það voru einar sex kýr sem átti eftir að koma inn. Ein var búin að eiga kálf þarna  úti á túni þannig að það varð að koma henni inn.  

Það gekk vel að ná þeim úr kálfastóðinu og koma þeim inn í fjósið.  Þær fimm sem ekki eru bornar fóru eins og skot í sinn bás en sú sjötta var ekki eins viljug og hentist út, uppá veg og niður á tún.  Magnús fór á fjórhjólinu á eftir henni og oftast er þær svo hræddar við hjólið að þær hlíða.  Nei ekki þessi nr. 69 (kann ekki nöfnin enn) hún hentist á allar girðingar og tætti fram hjá bóndanum ..

Ég horfði á þetta úr fjarlægð og þegar ég hvorki sá kúnna né heyrði í hjólinu  stökk ég inn í bíl og brunaði úr á tún.  Þar lágu þau saman Magnús og kýrin eða hann lág ofan á henni með puttana upp i nösunum á henni.   Hann sagði mér að setjast ofan á hausinn á kúnni  og toga í nasirnar á henni þá yrði hún kyrr á meðan hann næði í traktorinn og múl. Hann taldi að við myndum ekki ná henni öðruvísi heim.

Dísösss.. ég var hrædd um að ráða ekki við þetta flykki en hann sagði að ef  ég togað bara vel í nasirnar  hreyfði hún sig ekki og svo fór hann...

Nú þarna lá ég ofan á hausnum á beljunni með puttana uppí nösunum á henni (var sem betur fer í vinnuhönskum) og togaði og togaði...

Hann var sem betur fer fljótur í förum og að setja múlinn á band brjálaða kúnna.

Svo ók hann af stað með kúnna í eftirdragi spyrnandi öllum fjórum fótum og ég akandi mínum bíl á eftir...

Kýr nr. 69 var úrvinda og búin á því þegar við komum fjósið og ég held að hún hafi líka verið búin að gera sér grein fyrir því hver réði í þessu fjósi....... og var fljót í básinn sinn og ég dreif mig heim í eldhús......

 
 
 

 

 
 

Um bloggið

Gaman saman

Höfundur

Heiða Björg Scheving
Heiða Björg Scheving

Heiða Björg er mamma, amma, húsmóðir og leikskólakennari  sem er nýflutt úr borginni í sveitasælu á suðurlandi.

Það er svo margt skemmtilegt sem hún er að upplifa og  hún hefur mikla þörf fyrir að skrifa um það sem á daga hennar drífur og er þá ekki bara eins gott að leyfa því að flakka.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Eyfjaferð Fo-95 013
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 202
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 242
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 173
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 206

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband