14.10.2008 | 10:18
Slátur
En við tókum 37 slátur um helgina takk fyrir túkall... ..ég Bogga, Elín, Guðlaug og Díana .. ég veit nú ekki alveg hvenær það á að borða þetta.. því ég sauð restina frá því í fyrra í síðustu viku í hundinn...En hún Bogga er alveg ákveðin í að halda í hefðina... þær mæðgur mættu á föstudaginn og byrjuðu daginn á að elda lifur og lungu... eða nýru.. svo var kjötsúpa um kvöldið auðvitað af nýslátruðu.. Þær voru búnar með lifrapylsuna þegar ég mætti á svæðið.. en ég náði í blóðmörinn á laugardeginum..nú svo var að smakka á herlegheitunum.. og það klikkað ekki slátrið hjá henni Boggu frekar en fyrridaginn... með slátrinu voru soðin ..nýru, hjörtu og pungar.... hef ekki smakkað það fyrr.. og held ég láti það alveg vera í framtíðinni. Magnús tók upp kartöflur með Varmahlíðarfjölskyldunni á laugardaginn og þó svo að sex laðir séu enn eftir í mold fengum við 30 poka af bökunarkartöflum.. svo mikil er stærðin á þeim...
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 13.10.2008 kl. 13:53 | Facebook
Um bloggið
Gaman saman
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ja hérna 37 slátur, það er aldeilis myndarskapurinn.
kveðja. Gunna.
Guðrún María Óskarsdóttir., 15.10.2008 kl. 00:36
Þið eruð ótrúlega dugleg, en mér væri alveg sama þó ég smakki ekki... hefur eitthvað með að gera úr æsku
vorum á fundi á leikskólanunm hjá Töru Sól og hún hafði teiknað mynd af fjölskyldunni og hundinum sínum Mola og kisu, held hún sakni ykkar í sveitinni, leikskólakennararnir sögðu að hún talaði oft um ykkur og Mikka
jæja þetta ætti að vera nóg
kv. Diljá, Ingi og börnin sem elska sveitina ykkar
Diljá og Co (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 23:12
Já það vantar ekki myndaskapinn á þennan bæjinn.
En ef þú ert í einhverjum vandræðum með þetta þá getur þú bara sennt það í sultið í Danaveldi haha
Nei nei við höfum það mjög gott hérna út söknum ykkar að vísu mjög mikið og vonum að þið getið farið að koma í heimsókn til okkar. Ég ætla að hringja í Dabba eftir helgi ef hann verðu ekki búin að laga þetta hel.... gengi haha
Kveðja Odensegengið sem setndur í stað......
Hurnd (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 23:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.