Þorrablótin

Ég er eitthvað voðalega löt að skrifa þessa dagana.  Það er líklega af því að allt hefur sinn vana gang sem þíðir að það er frekar rólegt hjá mér.... eða þannig.  Veðrið búið að vera óvenju gott.  Snjór yfir öllu, en í  síðustu viku var komin  græn slikja  á túnin útaf hlýindum undanfarið hér undir fjöllum.  Við fórum í bíltúr í gær upp að Sólheimajökli.  Það var frábært.. fann þar góða gönguleið.

Nú fer að líða að þorrablóti en það verður 31. janúar og mínar frábæru vinkonur farnar að tilkynna komu sína okkar.   Það er gaman að fylgjast með og upplifa þessa stemningu sem er í kringum þessi þorrablót  hér í Rangárþingi eystra.  Ég held að það sé blót um hverja helgi á þorrananum í hverjum hrepp.. þ.e. gömlu hreppunum eins og  þeir voru fyrir sameiningu. Eyjafjöllin skiptust í vestur og austur Eyjafjallahrepp.. og þar eru enn haldin tvö blót annað á Heimalandi og hitt í Fossbúð að Skógum

Ég tilheyri þeim hópi sem fer að Skógum því Hvassafell tilheyrði austur-fjöllunum. Á hverju blót er dregið í nefndir sem eiga þá að sjá um næsta blót. Það er einmitt það sem er skemmtilegast.  Nú er fólk um allar sveitir að hittast í þorrablótsnefnum og semja annála um vini sína nágranna og best er auðvitað  það sem mest er hægt að hlæja að. Það er eins gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér og sínum  því það  eru fáir sem sleppa.

Vinkonu á þorrablóti

þessi mynd er einmitt tekin á þorrablótinu í fyrra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gaman saman

Höfundur

Heiða Björg Scheving
Heiða Björg Scheving

Heiða Björg er mamma, amma, húsmóðir og leikskólakennari  sem er nýflutt úr borginni í sveitasælu á suðurlandi.

Það er svo margt skemmtilegt sem hún er að upplifa og  hún hefur mikla þörf fyrir að skrifa um það sem á daga hennar drífur og er þá ekki bara eins gott að leyfa því að flakka.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Eyfjaferð Fo-95 013
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 202
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 242
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 173
  • FO 95                  í Eyjum 2009 1 2 206

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband